fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Alfreð var ekki skemmt: „Svo opna ég og þá eru bara fimm lögreglumenn fyrir utan“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 07:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alfreð Tulinius, stjórnarformaður Vélfags, segir farir sínar ekki sléttar eftir að hann var handtekinn í aðgerðum héraðssaksóknara í síðustu viku ásamt samstarfsmönnum sínum.

Alfreð ræðir þetta í viðtali í Morgunblaðinu í dag, en aðgerðin í síðustu viku var sögð tengjast rannsókn á starfsemi fyrirtækisins sem hefur sætt þvingunum vegna tengsla eiganda þess við rússneska aðila.

Í viðtalinu í Morgunblaðinu segir Alfreð að þegar lögreglumenn knúðu dyra á heimili hans hafi hann talið að verið væri að afhenda honum stefnu vegna vangoldinna gjalda Vélfags.

„Svo opna ég og þá eru bara fimm lögreglumenn þar fyrir utan og segja: Alfreð Tulinius, við erum með handtökuskipun á þig og húsleitarheimild,“ segir Alfreð við Morgunblaðið og bætir við að tölvan hans hafi verið gerð upptæk, pappírar sem hann var með í töskunni og síminn hans.

„Ég var svo handtekinn eftir húsleitina til skýrslugerðar. Hún stóð frá klukkan níu til rúmlega sex,“ segir hann og bætir við að kæruefnið hafi verið fullt af staðreyndavillum.

Hann segist þó hafa sloppið betur en þrír samstarfsmenn hans, þeirra á meðal voru ung hjón. „Konan er handtekin fyrir framan syni sína, átta og tíu ára gamla, og þar er gerð húsleit,” segir hann.

Eiginmaður konunnar var stoppaður í umferðinni með blikkandi ljósum, tekinn út úr bílnum, handjárnaður og keyrður upp á lögreglustöð þar sem hann var settur inn í klefa.

Nánar er fjallað um þetta í Morgunblaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“