
Goðsögnin Gary Lineker telur að Julian Alvarez gæti vel endað hjá Arsenal í sumar, en argentíski sóknarmaðurinn hefur verið orðaður við Skytturnar.
„Þetta er kannski bull eins og margt annað, en ég veit að Julian Alvarez er ekki alveg ánægður hjá Atlético,“ segir Lineker í hlaðvarpinu The Rest Is Football.
„Þetta er nákvæmlega svona leikmaður sem ræður við stóru augnablikin, hann er heimsmeistari, fjandinn hafi það. Þetta væri búið ef Arsenal fengi þannig leikmann,“ bætti hann við.
Alvarez, sem er 25 ára, hefur skorað 11 mörk í 29 leikjum á leiktíðinni. Samkvæmt fréttum gæti Atletico verið tilbúið að selja, en aðeins fyrir næstum 90 milljónir punda.
Arsenal skoðar þann möguleika að styrkja sóknarleikinn, en þrátt fyrir frábært gengi á leiktíðinni hefur enginn einn leikmaður raðað inn mörkum.