fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Georgina vekur athygli – Aftur heimsótti hún Hvíta húsið en nú fór Ronaldo ekki með

433
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 18:30

Georgina Rodriguez í heimsókninni til Washington.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Georgina Rodriguez heimsótti Hvíta húsið í annað sinn á þremur mánuðum þegar hún mætti á frumsýningu heimildarmyndarinnar Melania, sem fjallar um Melaniu Trump, forsetafrú Bandaríkjanna.

Georgina, sem er 32 ára, vakti athygli í glæsilegum svörtum kjól og bar rauða handtösku við tilefnið. Hún deildi myndum frá kvöldinu á Instagram.

„Hversu heppin að fá að vera viðstödd frumsýninguna. Upplifun sem var áhrifamikil og veitti mér innblástur,“ sagði Georgina þar.

Cristiano Ronaldo, unnusti hennar, var ekki með í för í þetta sinn þar sem hann var upptekinn við að spila með Al-Nassr í Sádi-Arabíu. Lið hans vann 1-0 sigur á Al-Taawoun, þar sem Ronaldo lék í fremstu víglínu.

Ronaldo og Georgina heimsóttu Hvíta húsið saman í nóvember síðastliðnum, þar sem þau hittu meðal annars Donald Trump forseta. Trump hrósaði Ronaldo þá sérstaklega og sagði son sinn vera mikinn aðdáanda knattspyrnustjörnunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“