fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Bandarískum TikTok-notendum brugðið yfir uppfærðum skilmálum vegna eigendaskiptanna

Pressan
Mánudaginn 26. janúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarískum notendum miðilsins TikTok brá í brún fyrir helgi þegar forritið bað þá að samþykkja nýja skilmála. Uppfærslan á rætur að rekja til eigendaskipta en yfirvöld í Bandaríkjunum hótuðu að banna miðilinn í landinu ef bandarískur rekstur hans væri ekki í meirihlutaeigu bandarískra aðila. Eftir nokkur átök varð lendingin sú að fyrirtækið TikTok USDS Joint Ventures LLC var stofnað utan um reksturinn en meðal eigenda er fyrirtækið Oracle sem er í eigu athafnamannsins íhaldssama, Larry Ellison.

Þó að fæstir lesi skilmála forrita og miðla, hvað þá uppfærða skilmála, vakti þessi uppfærsla athygli. Þar eru notendur látnir samþykkja að miðillinn safni upplýsingum um staðsetningu notenda í gegnum GPS, að gervigreind miðilsins megi safna og geyma upplýsingum og að miðillinn megi nota gögn til að persónusníða auglýsingar og annað kostað efni.

Einn kafli úr skilmálunum hefur vakið sérstaka athygli, en að sögn TechCrunch var sambærilegan kafla að finna í fyrri skilmálum. Þar samþykkja notendur að miðillinn safni og geymi viðkvæmar persónuupplýsingar á borð við kynhneigð, kynlíf, kynvitund, ríkisborgararétt, innflytjendastöðu, trúarbrögð og andlega og líkamlega heilsu. Orðalagið í kaflanum er í samræmi við persónuverndarlög í Bandaríkjunum en þar er áskilið að notendur samþykki vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga.

Þó að orðalagið sé að mestu óbreytt hvað viðkvæmar persónuupplýsingar varðar fór það fyrir brjóstið á sumum bandarískum notendum. Tolla- og innflytjendaeftirlitið ICE hefur verið í hörðum aðgerðum gegn ólöglegum innflytjendum og óttuðust margir að nú stæði til að nota TikTok til að hafa uppi á fólki til að brottvísa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér