fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Verjandi Möggu Frikka telur ólíklegt að hún hljóti refsingu fyrir ummæli um lauslæti dómara

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 26. janúar 2026 09:30

Margrét á leiðinni í dómsal við aðalmeðferð málsins. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega var aðalmeðferð við Héraðsdóm Reykjaness í meiðyrðamáli sem Lögreglustjórinn á höfuðhorgarsvæðinu höfðaði á hendur Margréti Friðriksdóttur fyrir ummæli um héraðsdómarann Barböru Björnsdóttur. Kallaði hún dómarann meðal annars „lausláta mellu“.

Verjandi Margrétar, Hilmar Garðar Þorsteinsson lögmaður, hefur birt grein um málið á Vísir.is þar sem hann fer yfir vitnisburð dómara í málinu. Margrét hélt því fram, og byggði á nafnlausu bréfi, að tveir giftir dómarar, Barbara Björnsdóttir og Símon Sigvaldason, hefðu átt í ástarsambandi en bæði verið gift öðru fólki. Babara neitaði fyrir dómi að hafa átt í sambandi við Símon en Símon neitaði að svara spurningunni á grundvelli 118. greinar laga um meðferð sakamála, en hún hljóðar svo:

Vitni er rétt að skorast undan því að svara spurningu ef ætla má að í svari þess geti falist játning eða bending um að það hafi framið refsiverðan verknað eða atriði sem valdi því siðferðislegum hnekki eða tilfinnanlegu fjárhagstjóni.“

Það var Barbara sem kærði Margréti til lögreglu fyrir ummæli hennar um sig en lögreglustjóri ákærði Margréti síðan fyrir ærumeiðingar.

Sjá einnig: Réttarhöld hafin yfir Möggu Frikka – Ákærð fyrir ummæli um dómara

Hilmar lögmaður segir í grein sinni:

„Fyrir dómi neitaði dómarinn ekki aðeins að hún hefði staðið í framhjáhaldi, heldur alfarið að hún hefði átt í ástarsambandi við hinn dómarann og kom fram hneykslun hennar á spurningum þar að lútandi. Kenndi hún einelti þriðja dómarans um ritun kvörtunarbréfs til dómstólasýslunnar sem lagt hafði verið fram í málinu. Þar kom meðal annars fram að komið hefði verið að dómurunum á skrifstofu dómstjóra í athöfnum sem gáfu til kynna samband af nánasta tagi.“

Hilmar segir ólíklegt að Margrét verði dæmd til refsingar fyrir ummæli um Barböru dómara. Hins vegar sé vitnum skylt og segja sannleikann fyrir dómi:

„Dómur er enn ófallinn um ummæli konunnar en erfitt er að sjá að hún muni hljóta refsingu fyrir ummæli sín um lauslæti dómarans sem kærði. Eftir stendur að dómarar brýna alltaf fyrir vitnum að segja satt og rétt frá að viðlagðri refsiábyrgð, og bæta því jafnframt við að siðferðislega ámælisvert sé að segja ósatt fyrir dómi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“