

Veldi Donalds Trump og fjölskyldu hans hefur vaxið gríðarlega frá því hann hóf annað kjörtímabil sitt sem forseti Bandaríkjanna. Samkvæmt úttekt ritstjórnar The New York Times, sem byggir á gögnum frá meðal annars Reuters og öðrum alþjóðlegum fjölmiðlum, hefur Trump nýtt forsetaembættið til að afla sér tekna upp á minnsta kosti 1,4 milljarða dala.
Í skýrslunni er jafnframt tekið fram um að sé að ræða varfærið mat og líklega sé hagnaðurinn mun meiri, þar sem hluti tekna Trump-fjölskyldunnar sé enn ekki sýnilegur almenningi.
Trump-fjölskyldan hefur haldið áfram að selja notkun á nafni Trumps erlendis, meðal annars í formi leyfisveitinga, sem hafa skilað tugum milljóna dala í kassann. Samkvæmt Reuters hafa slík verkefni fært fjölskyldunni að minnsta kosti 23 milljónir dala.
Golfklúbbar Trumps hafa einnig reynst arðbærir og eru tekjur af þeim sagðar nema 33 milljónum dala. Þá hefur Trump Organization tryggt sér stórar fasteignafjárfestingar í Asíu og Miðausturlöndum, meðal annars 1,5 milljarða dala golfverkefni nærri Hanoi í Víetnam.
Einnig hefur athygli vakið að Katar gaf Trump 400 milljóna dala þotu til notkunar sem Air Force One, sem mun jafnframt fylgja honum eftir að forsetatíð hans lýkur.
Stærstu hluti tekna Trumps virðist þó koma frá rafmyntum. Forsetinn hefur lýst því yfir að hann vilji gera Bandaríkin að „rafmyntaveldi heimsins“ en Trump-fjölskyldan á stóran hlut í verkefninu World Liberty.
Samkvæmt Reuters hafa rafmyntaverkefni Trumps skilað 802 milljónum dala á fyrri hluta árs 2026. Þar af komu 463 milljónir dala frá sölu á World Liberty-táknum og 336 milljónir dala frá sölu á svokallaðri Trump-mememynt, $TRUMP. Fjárfestar hafa meðal annars komið frá Kína og Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Það er ekki bara Trump sjálfur sem hefur makað krókinn því eiginkona hans, Melania, hefur einnig hagnast verulega. Samkvæmt The Wall Street Journal samþykkti Amazon að greiða henni 40 milljónir dala fyrir heimildarmynd þar sem hún er bæði viðfangsefni og aðalframleiðandi. Myndin á að koma út á Prime Video og vera sýnd í kvikmyndahúsum auk þess sem heimildarþáttaröð fylgir samningnum.
Trump hefur einnig fengið milljónir í sáttagreiðslur frá fjölmiðla- og tæknifyrirtækjum. Þar á meðal samþykkti Paramount að greiða 16 milljónir dala vegna ágreinings um CBS-viðtal við Kamölu Harris árið 2024. Fyrirtækið hefur þó sagt að fjármunirnir renni til forsetabókasafns Trumps eða góðgerðarmála, ekki beint til hans.
Hvíta húsið hafnar fullyrðingum um hagsmunaárekstra. Í yfirlýsingu sagði Taylor Rogers, talsmaður forsetans, að um væri að ræða „óábyrgar tilraunir fjölmiðla til að grafa undan trausti almennings“.
„Forsetinn er og hefur alltaf verið knúinn áfram eingöngu af því sem er best fyrir bandarísku þjóðina,“ sagði Rogers.