fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Segist ekki ætla að beita hervaldi til að taka Grænland

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 14:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ef þið segið já munum við kunna að meta það. Ef þið segið nei þá munum við ekki gleyma því,“ sagði Donald Trump í ræðu sinni á heimsviðskiptaráðstefnunni í Davos, og vísaði þar til krafna hans um að Bandaríkin eignist Grænland.

Hann sagði Bandaríkin hafa gert ótrúlega mikið fyrir Evrópu en ekki fengið neitt í staðinn. Án Bandaríkjanna myndi Evrópa tala þýsku og japönsku, sagði hann og vísaði til endaloka síðari heimstyrjaldarinnar þar sem Bandaríkjamenn hefðu sigrað Þjóðverja og bandamenn þeirra.

Trump sagðist vilja viðræður við NATO og Danmörku um eignarhald á Grænlandi. Hann sagðist ekki munu beita hervaldi til að taka yfir landið og sagði að væntanlega létti mörgum við þau tíðindi.

Trump sagði að það eina sem Bandaríkin vildu fá í staðinn fyrir allt sem þau gerðu fyrir Evrópu og NATO væri stór ísklumpur, og átti þar við Grænland. Í kjölfarið kallaði hann Grænland nokkrum sinnum Ísland og virtist þar vera að uppnefna Grænland.

Trump sagði að vinnsla sjaldgæfra málma væri ekki markmiðið með yfirtöku Grænlands heldur vildi hann byggja þar upp risastórt loftvarnakerfi, Golden Dome.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla

Reykjavíkurborg varpar ljósi á það sem er í gangi í Ölduselsskóla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“