fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Borgarstjórn biður börn sem voru vistuð á Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins afsökunar

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 13:53

Vöggustofa Thorvaldsensfélagsins við Dyngjuveg 18 í Reykjavík

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borgarstjórn samþykkti í dag á fundi sínum ályktun þar sem þau sem vistuð voru sem börn á Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins á árunum 1974 til 1979 og fjölskyldur þeirra eru beðin afsökunar á þeirri meðferð sem lýst var í skýrslu vöggustofunefndar. 

Ályktunin borgarstjórnar í heild er svohljóðandi: 

Borgarstjórn biður öll þau sem vistuð voru sem börn á Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins á árunum 1974 til 1979 og fjölskyldur þeirra afsökunar á þeirri meðferð barnanna sem lýst var í skýrslu vöggustofunefndar. Þrátt fyrir að vöggustofubörnin hafi ekki sætt illri meðferð í skilningi laganna, þá var vissum þáttum varðandi meðferð barnanna ábótavant. Þar má nefna að ekki var hugað að því með faglegri vinnu eða greiningum að mæta sérþörfum barna, svo sem þeirra sem voru fötluð, þeirra sem voru eldri og þeirra sem komu úr sérstaklega erfiðum aðstæðum eða voru vistuð oft. Dæmi eru um að barn hafi verið vistað í fjögur á ár vöggustofunni og elsta barnið sem var vistað var 15 ára. 

Afdrif vöggustofubarnanna eru sláandi. Af þeim 149 börnum sem dvöldu á vöggustofunni í einn mánuð eða lengur eru 60 skráð öryrkjar eða 40,3% en hlutfall meðal jafnaldra er 20%. Þá er dánartíðni umtalsvert hærri á meðal fyrrum vöggustofubarna eða 13,4% borið saman við einungis 4,8% hjá jafnöldum.

Borgarstjórn vill þakka vöggustofunefndinni fyrir umfangsmikla, vandaða og vel rökstudda skýrslu. Borgarstjórn er einnig þakklát hvatamönnum þess að ráðist var í gerð beggja vöggustofuskýrslnanna, þeim Árna H. Kristjánssyni, Fjölni Geir Bragasyni, Hrafni Jökulssyni, Tómasi V. Albertssyni og Viðari Eggertssyni. Tveir af þessum heiðursmönnum eru fallnir frá. 

Borgarstjórn tekur heilshugar undir tillögur vöggustofunefndar og vinnsla þeirra er þegar í farvegi, m.a. um að Reykjavíkurborg tryggi vöggustofubörnum geðheilbrigðis- og sálfræðiþjónustu þeim að kostnaðarlausu líkt og gert var þegar fyrri vöggustofuskýrslan kom út 2023.

Borgarstjórn skorar jafnframt á dómsmálaráðuneyti að ljúka við gerð frumvarps um sanngirnisbætur sem fyrst til að leitast við að skýra leiðir til að rétta hlut þeirra einstaklinga sem vistaðir voru á Vöggustofunni Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins í formi skaðabóta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“