
CNN greinir frá þessu.
Samkvæmt skýrslunni gegndu 74 af 2.027 milljarðamæringum heimsins einhvers konar opinberum embættum á síðasta ári. Það jafngildir 3,6 prósenta líkum á að milljarðamæringur sitji í opinberu embætti, á meðan samsvarandi líkur fyrir hinn venjulega borgara eru aðeins 0,0009 prósent.
Oxfam bendir á að þetta þýði að milljarðamæringar séu um 4.000 sinnum líklegri til að hafa pólitísk völd en aðrir.
Birting skýrslunnar kemur um svipað leyti og árleg ráðstefna Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos hefst. Þar hittist áhrifafólk á sviðum viðskipta og stjórnmála og ræða meðal annars um efnahagslegar áskoranir í heiminum.
Þá er bent á það í frétt CNN að birting skýrslunnar komi einnig um svipað leyti og Donald Trump Bandaríkjaforseti lýkur sínu fyrsta ári sem forseti Bandaríkjaforseti. Hann er sjálfur milljarðamæringur og valdamesti maður heims.
Oxfam bendir á það í skýrslu sinni að þessi þróun sé ekki bara bundin við Bandaríkin. Bent er á náin tengsl auðugra einstaklinga við stjórnvöld í löndum á borð við Argentínu og Nígeríu svo einhver séu nefnd.