fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Lögreglan óskar eftir upplýsingum um hótanir með skotvopni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 19. janúar 2026 13:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá tveimur stórum aðgerðum um helgina.

Að morgni 15. janúar var tilkynnt um innbrot í byggingafyrirtæki á Akureyri. Þaðan hafði verið stolið sérhæfðum tölvubúnaði, lyklum af um tug ökutækja, vinnutækja og ýmsum verðmætum og hófst rannsókn þá þegar á málinu. Að kvöldi 16. janúar voru fjórir einstaklingar handteknir á Akureyri og einn á Raufarhöfn grunaðir um aðild að innbrotinu. Í framhaldi var farið í húsleitir á Raufarhöfn. Með aðgerðunum hafði lögregla uppi á þýfinu og er búið að koma því til skila til réttra eigenda. Segir í tilkynningunni að rannsókn málsins sé langt komin.

Á laugardagskvöldið fór lögreglan síðan í aðgerðir á Akureyri í þeim tilgangi að hafa uppi á skotvopni sem grunur er um að hafi verið notað við hótanir. Húsleitir og handtökur fóru fram á fjórum stöðum. Sex einstaklingar voru handteknir og hald lagt á talsvert magn fíkniefna, fjármuni, eggvopn, skotvopn, skotfæri og meintan ávinning af brotastarfsemi. Rannsókn beinist nú að fjórum sakborningum en þar af eru tveir undir 18 ára aldri. Allir aðilar hafa verið látnir lausir og málið er í rannsókn.

Í tengslum við rannsókn málsins óskar lögregla eftir upplýsingum sem fólk kann að hafa um nýlegar hótanir með skotvopni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”