fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hlaut mölbrot á úlnlið í hrottalegri árás fyrir utan Apótekið

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 19. janúar 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært tvo menn vegna árásar á aðra tvo menn fyrir utan veitingastaðinn Apotek, Austurstræti 16, laugardaginn 20. apríl árið 2024.

Þeim er gefið að sök að hafa veist í sameiningu að manni þar sem annar hrinti honum í götuna, settist ofan á hann og sló hann ítrekað víða um líkamann með krepptum hnefa. Hinn sparkaði í líkama hans og höfuð. Hlaut hann brot við vinstri úlnlið, mélbrot, skurð í hægri lófa og blæðingu í hægri olnboga.

Annar árásarmannanna er síðan sakaður um að hafa ráðist á annan mann á sama tíma og sama stað, og slegið hann með krepptum hnefa í andlitið.

Hinn árásarmaðurinn er sakaður um að hafa haft í vörslu sinni 2,23 grömm af kókaíni.

Fyrrnefndi brotaþolinn krefst 3,5 milljóna króna í miskabætur.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur 29. janúar næstkomandi.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“