

Jökull Andrésson, markvörður FH, var gestur Íþróttavikunnar á 433.is og sat í setti með Helga Fannari Sigurðssyni og Herði Snævari Jónssyni.
Jökull gekk í raðir FH í vetur frá Aftureldingu. Hann er afar glaður með fyrstu vikurnar hjá Hafnarfjarðarfélaginu.
HB_ITR702_NET.mp4
„Þetta er búið að vera geggjað. Strákarnir eru búnir að vera stórkostlegir. Það er ekkert grín að fá gæja eins og mig inn í liðið, ég er stórfurðulegur,“ sagði Jökull og hló.
Jóhannes Karl Guðjónsson tók við sem þjálfari FH af Heimi Guðjónssyni í vetur.
„Jói Kalli er geggjaður. Hann er ekkert að grínast og er strax kominn með sína hugmyndafræði, hvernig hann vill hafa þetta. Það er fundur á hverjum degi og allt ótrúlega fagmannlegt, æfingaaðstaðan, gymmið. Ég elska þetta.“
Umræðan í heild er í spilaranum.