
Maðurinn, Christopher Thomas Collins, er 42 ára gamall djákni í Abba‘s House-kirkjunni í bænum Hixson.
Samkvæmt dómsskjölum, sem New York Post vitnar til, grunaði eiginkona hans hann um framhjáhald. Fór hún í gegnum símann hans þegar hann bað hana að geyma hann fyrir sig þegar hann fór til tannlæknis.
Konan fór í gegnum símann og fann þá nektarmyndbönd af unglingsstúlku sem áður hafði starfað sem barnapía á heimili þeirra. Reyndust myndböndin hafa verið tekin með falinni myndavél á baðherbergi heimilis þeirra, að sögn lögreglu.
Myndböndin sýndu stúlkuna þar sem hún sást meðal annars fara í sturtu, nota salernið og skipta um föt.
Lögregla segir upptökurnar hafa verið teknar með litlum myndavélum sem voru faldar og beindust að sturtu og salerni. Í að minnsta kosti einu myndbandi virðist stúlkan taka eftir myndavélinni á meðan hún var að afklæðast.
Collins sagði eiginkonu sinni í fyrstu að myndavélarnar hefðu verið settar upp til að fylgjast með rottugangi á heimilinu.
Eftir uppgötvunina leitaði eiginkona hans til kirkjunnar Abba’s House eftir ráðgjöf. Þar var henni ráðlagt að hafa samband við lögreglu. Hún og börn hennar voru flutt á hótel til öryggis á meðan lögregla hafði uppi á Collins, sem var handtekinn skömmu síðar.
Lögregla lagði hald á farsíma Collins og fékk heimild til að leita í honum. Einnig fundust tvö SD-minniskort úr litlum myndavélum og eldri farsími. Rannsakendur segja alls níu myndbandaskrár, tímasettar árið 2025, hafa fundist.
Collins mun hafa viðurkennt í yfirheyrslu að hafa tekið upp myndböndin. Í kjölfar handtökunnar svipti kirkjan hann djáknatitli sínum.