fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Keane heldur áfram og hjólar nú fast í eiginkonu Carrick – Ástæðan grafin upp

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 16. janúar 2026 19:00

Roy Keane

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband frá því fyrir tólf árum af hárbeittum ummælum Roy Keane um viðtal Michael Carrick hefur farið eins og eldur í sinu á netinu og er talið marka upphaf langvarandi illdeilna þeirra.

Á fimmtudag vakti Keane, goðsögn Manchester United, mikla athygli þegar hann lét óvænt og umdeild ummæli falla um eiginkonu Carrick, Lisu Roughead, í nýjasta þætti hlaðvarpsins Stick to Football.

„Eiginkona hans getur alltaf stokkið inn ef Carrick stendur sig ekki, hún er stundum ansi kjaftfor. Hún er líklega að halda liðsfundinn,“ sagði Keane og kveikti þar með storm á samfélagsmiðlum.

Ummælin rifjuðu upp gömul sár frá árinu 2014 þegar stutt orðaskipti urðu milli Keane og Lisu. Netverjar hafa nú grafið upp myndbandið sem talið er hafa hrundið öllu af stað. Þar sést Carrick í viðtali við Gabriel Clarke hjá ITV eftir dapurt 2-0 tap Manchester United gegn Olympiacos í Meistaradeildinni.

Carrick, sem virtist niðurbrotinn, sagði í viðtalinu að ábyrgðin væri sameiginleg og að liðið væri enn inni í einvíginu fyrir seinni leikinn.

Eftir að Keane gagnrýndi frammistöðuna harkalega brást Lisa við á samfélagsmiðlum og kallaði Keane „Fávita“ sem segði hvað sem er til að framkalla viðbrögð. Hún eyddi færslunni fljótlega og bætti við að tilfinningarnar hefðu hlaupið með sig í gönur.

Deilan virðist því eiga sér langa sögu og er enn á ný komin í sviðsljósið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn