fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Kemur erfðafjárskattinum til varnar: „Þeir sem erfa háar fjárhæðir eru ekki verðmeira fólk en sá sem erfir ekkert“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 16. janúar 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, kemur erfðafjárskatti til varna í grein sem hann birti á vefsvæði sínu. Þar tekur hann fram að verðleikar fólks verði ekki mældir í hverra manna það er eða hversu miklar eignir það á. Verðleikar snúist um að gera samfélaginu gagn og stuðla að sameiginlegri velferð.

„Á Íslandi er reglulega rifist um erfðafjárskatt og hvort hann sé réttlætanlegur. Þeir sem stunda „toppinn niður“ pólitík telja hann gríðarlegt óréttlæti á meðan að þeir sem trúa á að það sé til eitthvað sem heitir samfélag telja hann ekki einungis réttlátan heldur beinlínis nauðsynlegan. Það er nefnilega þannig að þeir sem erfa háar fjárhæðir eru ekki verðmeira fólk en sá sem erfir ekkert. Og ef tilfærsla á eignum milli kynslóða er ekki skattlögð þá mun auður einnar slíkrar stjórna þeirri næstu.“

Tilefni skrifanna er gagnrýni á erfðafjárskattinn sem á rætur að rekja til misskilnings stjórnarandstöðunnar. Stjórnarandstaðan sá að samkvæmt endurmati í fjárlögum var gert ráð fyrir hærri tekjum vegna erfðafjárskatts en áður. Af þessu ályktaði stjórnarandstaðan að til stæði að hækka skattinn. Hið rétta er þó að endurmatið má rekja til þess að greiðsla á fyrirframgreiddum skatti hefur stóraukist undanfarin ár og tekjur því verið umfram áætlun. Endurmatið miðaði við þetta. Skatturinn sjálfur helst óbreyttur og í reynd hækkaði frítekjumarkið um áramótin.

„Framganga stjórnarandstöðunnar og fjölmiðlanna sem slógu á sömu trommu var því upplýsingaóreiða. Með sömu aðferðarfræði og þetta gengi beitti til að framkalla hughrifin um „stórhækkun erfðafjárskatts“ mætti segja að fjármagnstekjuskattur hafi stórhækkað á milli áranna 2023 og 2024, þegar Sjálfstæðisflokkurinn var stærsti flokkurinn í ríkisstjórn, en tekjur ríkissjóðs vegna hans fóru upp um sex milljarða króna á þeim tíma.“

Þórður rekur í grein sinni að undanfarin ár hafi heildargreiðslur arfs aukist gríðarlega, jafnvel þó að arfleifendur hafi verið færri. Þetta skýrist að langmestu af aukningu í útgreiðslu á fyrirframgreiddum arfi en eins hafi verðmæti dánarbúa aukist vegna fasteignabólu. Húsnæðisverð hafi rokið upp og fasteignir vega þungt í dánarbúum þjóðarinnar. Næstum átta af hverjum tíu hreinu krónum sem landsmenn eiga eru eign í fasteign. Þetta þýðir að fasteignaeigendur hafa stórefnast í fasteignabólunni en þeir sem enga fasteign eiga hafa setið eftir. Erfingjar þessara aðila eiga því von á minni arfi en erfingjar fasteignaeigenda. Fasteignaeigendur geta eins frekar en aðrir stutt við afkomendur sína með fyrirframgreiddum arf.

Telur Þórður að erfðafjárskattur sé nauðsynlegur til að koma í veg fyrir að auður einnar kynslóðar stjórni þeirri næstu. Þessu séu Sjálfstæðis- og Miðflokksmenn ósammála en þeir trúi á þá hugmyndafræði að ef hagsmuna þeirra sem mest eiga er gætt og auður þeirra tryggður þá muni þeir sem minna eiga njóta góðs af mylsnum þessa auðs. Þórður telur þó að verðleikar fólks eigi ekki að mælast í því hverra manna það er og hversu mikið það á.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“