
Þann 7. janúar var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir manni sem ákærður var fyrir brot í nánu sambandi gagnvart þáverandi sambýliskonu sinni, með því að hafa á þáverandi heimili þeirra á endurtekinn og alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð hennar.
Ákært var vegna tveggja árása og átti önnur sér stað laugardaginn 18. júní árið 2023. Tók hann þá konuna kverkataki og þrengdi að öndunarvegi hennar þannig að hún átti erfitt með andardrátt og hlaut mar á hálsi.
Laugardaginn 26. október árið 2024 kýldi hann konuna með krepptum hnefa í höfuð, skallaði hana í andlit og beit hana í handlegg og hlaut hún af þessu mar, rispur, bitfar og kúlu.
Maðurinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og var það virt honum til refsilækkunar.
Var hann dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Dóminn má lesa hér.