fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Geirfinnsmálið: Sakar Valtý um að hafa haft afskipti af vitnum og málsaðilum í 50 ár

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Björgvin, höfundur bókarinnar Leitin að Geirfinni, segir að Valtýr Sigurðsson, fyrrverandi fulltrúi Bæjarfógeta í Keflavík, hafi í hálfa öld haft ítrekað afskipti af vitnum og málsaðilum í Geirfinnsmálinu.

Sigurður og aðrir aðstandendur bókarinnar hafa ítrekað haldið því fram að Valtýr hafi vísvitandi afvegaleitt rannsókn málsins á sínum tíma en þessir aðilar telja að Geirfinni hafi verið banað á heimili hans, af manni sem tengdur er eiginkonu hans fjölskylduböndum. Sjónarvottar að átökunum hafi verið eiginkona Geirfinns og ástmaður hennar, Svanberg Helgason. Vinkona eiginkonunnar hafi jafnframt haft vitneskju um atbburðina, Saka þau Valtý um að hafa vísvitandi beint rannsókninni frá þessum vettvangi og inn í blindgötu.

Valtýr hefur margsinnis vísað þessum ásökunum á bug og líkt kenningum bókarhöfunda við málflutning þeirra sem telja jörðina vera flata. Haukur Guðmundsson rannsóknarlögreglumaður, sem rannsakaði mál Geirfinns á sínum tíma, hefur tekið í sama streng, meðal annars í viðtali við DV:

Haukur sakar Soffíu um lygar – „Valtýr var mjög vandaður og ábyggilegur embættismaður“

Sigurður Björgvin flytur ásakanir á hendur Valtý í löngu máli á Facebook-síðu sinni og rekur þrjú meint dæmi um þessi afskipti hans. Eitt dæmið er eftirfarandi:

„Annað dæmi er Hafþór Svavarsson eigandi Hafnarbúðarinnar í Keflavík. Hann gerði sér sérstaka ferð til Reykjavíkur í mars 1976 til að ræða við Eggert N. Bjarnason rannsóknarlögreglumann um Sjöfn Traustadóttir vinkonu Guðnýjar konu Geirfinns (og meintri barnsmóður Valtýs). Sjöfn vann hjá Hafþóri árið 1974 við afgreiðslu í Hafnarbúðinni en hætti þar skyndilega þegar Geirfinnur hvarf.

Í greinargerð sem Sævar Ciesielski gerði árið 1993 kemur fram að hann grunaði einnig að Sjöfn væri viðriðin Geirfinnsmálið, rétt eins og Hafþór gerði á sínum tíma. Sævar hafði því tal af Hafþóri en þá brá svo við að Hafþór þverneitaði að Sjöfn hefði nokkrntíma unnið hjá sér í Hafnarbúðinni. Tilviljun eða ekki, en það kemur einnig fram í greinargerð Sævars að Valtýr hafi „hjálpað“ til við öflun upplýsinga um gang rannsóknarinnar í Keflavík.“

Grein Sigurðuar má lesa með því að smella á tengilinn hér að neðan:

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“