

Ruben Amorim gæti snúið hratt aftur í þjálfarastólinn í ensku úrvalsdeildinni og jafnvel staðið andspænis Manchester United á næstunni.
United sagði Amorim upp störfum eftir harðvítuga deilu hans við Jason Wilcox. Brottreksturinn kom aðeins nokkrum dögum eftir sprenghlægilega gagnrýni Amorim á stjórnendur félagsins á blaðamannafundi í kjölfar jafnteflis gegn Leeds United.
Þrátt fyrir að hafa aðeins verið atvinnulaus í rúma viku hefur Portúgalinn verið orðaður við nokkur knattspyrnustjórastörf, þar á meðal hjá félagi sem leikur í Meistaradeild Evrópu. Nú hefur einnig verið varpað fram þeirri hugmynd að hann gæti áfram starfað í ensku úrvalsdeildinni, í afar óvæntri ráðningu.
Fyrrverandi varnarmaður Tottenham Hotspur, Sol Campbell, telur Amorim vera kjörinn arftaka Thomas Frank hjá Spurs. Frank er undir mikilli pressu eftir erfitt tímabil og gagnrýni hefur aukist.
Í samtali við Sky Bet sagði Campbell. „Ruben Amorim. Þeir munu horfa til hans, það kemur mér ekkert á óvart. Ég held ekki að hann fari aftur til Portúgals. Tottenham mun kanna stöðuna, það eru örugglega viðræður í gangi bak við tjöldin.“
Ef af verður gæti Amorim snúið aftur á Old Trafford fyrr en margir bjuggust við, nú sem andstæðingur Manchester United.