fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Segir að gögn muni birtast í febrúar sem sanni að Jeffrey Epstein var myrtur

Pressan
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Athafnamaðurinn og níðingurinn Jeffrey Epstein var myrtur. Þessu heldur bróðir hans, Mark Epstein, fram en hann segir nú að í febrúar verði birt ný krufningarskýrsla sem muni sanna þetta.

Það var Mark sem var fenginn til að bera kennsl á Jeffrey eftir að hann fannst látinn í fangaklefa sínum í New York árið 2019. Mark segir að á líkinu hafi mátt sjá áverka sem bentu til þess að hann hefði ekki fallið fyrir eigin hendi, líkt og haldið hefur verið fram.

Mark ákvað að ráða fyrrum réttarmeinalækninn Michael Baden til að fylgjast með krufningunni. Formleg niðurstaða krufningarinnar var að Jeffrey hefði framið sjálfsvíg en Baden er á öðru máli. Hann segir að sönnunargögn bendi til þess að níðingurinn hafi verið myrtur.

„Það eru bara þrjár leiðir til að deyja í fangelsi. Sjálfsvíg, náttúrlegar orsakir og morð. Jeff var myrtur. Ég vil vita hver myrti hann og fyrir hvern það var gert.“

Fyrrum samstarfskona Jeffreys, Ghislaine Maxwell, telur einnig að Jeffrey hafi verið ráðinn bani.

„Jeffrey var myrtur og frekari upplýsingar frá krufningunni munu koma fram í dagsljósið í febrúar og sanna þetta,“ sagði Mark í samtali við NewsNation á föstudaginn.

_______________________

Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu