fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Tottenham arkar út á markaðinn vegna meiðsla á miðsvæðinu

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 07:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tottenham Hotspur hefur áhuga á að ganga frá kaupum á miðjumanninum Conor Gallagher frá Atletico Madrid, samkvæmt miðlum í London.

Á sama tíma er greint frá því að miðjumaður Spurs, Rodrigo Bentancur, verði frá keppni í að minnsta kosti þrjá mánuði vegna meiðsla aftan í læri. Bentancur meiddist í tapi Tottenham gegn Bournemouth í síðustu viku og talið er að hann þurfi að gangast undir aðgerð.

Meiðsli Bentancur, ásamt fjarveru Lucas Bergvall, hafa gert það að forgangsmáli hjá Spurs að styrkja miðjuna í janúarglugganum. Tottenham hefur lengi horft á Gallagher og er sagður hafa aukið áhuga sinn undanfarið.

Sky Sports News greinir jafnframt frá því að Aston Villa sé einnig að kanna möguleika á að semja við Gallagher.

Atletico Madrid er þó ekki tilbúið að lána leikmanninn nema samningurinn feli í sér kaup, og félagið vill fá upphæð sem er nálægt þeim 38 milljónum punda sem það greiddi Chelsea fyrir hann sumarið 2024.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn