fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ákærður fyrir að nauðga andlega fatlaðri konu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 11. janúar 2026 12:00

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun en honum er gefið að sök að hafa aðfaranótt laugardagsins 19. febrúar árið 2022 haft samræði við konu á heimili hennar án hennar samþykkis og með því að beita hana ólögmætri nauðung.

Ákærði kyssti andlit konunnar, saug háls hennar og geirvörtur, dró niður um hana buxur og hafði við hana samræði og skeytti því engu þó konan segði honum ítrekað að hún vildi þetta ekki, en ákærði notfærði sér yfirburði sína og aðstöðumun gagnvart konunni, sem gat ekki spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar. Af þessu hlaut konan mar á hálsi.

Fyrir hönd brotaþola er krafist 3,5 milljóna króna í miskabætur.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í vikunni en réttarhöld í málinu eru fyrir luktum dyrum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”