fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Safna undirskriftum gegn flugeldum – „Gæludýr, húsdýr og villidýr geta enga björg sér veitt“

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 11. janúar 2026 17:30

Dæmi eru um að hestar hafi brotist út úr hesthúsum vegna hræðslu. Mynd/Stefán

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmlega þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista dýravina um breytingar á lögum um flugelda. Snýst hann um að finna öruggari og sanngjarnari leiðir til þess að fagna áramótum.

Hestakonan Dagrún Sunna hrundi undirskriftalistanum af stað síðastliðinn miðvikudag og gildir hann til 6. febrúar næstkomandi. Þegar þetta er skrifað hafa safnast rúmlega þúsund undirskriftir.

„Við viljum öll eiga skemmtileg áramót en ég vil að bæði mönnum og dýrum líði vel. Með þessum lista getum við óskað eftir breytingum á lögum og reglum varðandi flugelda,“ segir í færslu með undirskriftalistanum á island.is.

„Á hverju ári fögnum við áramótum með flugeldum og látum. Þetta er skemmtileg hefð en síðastliðin ár finnst mér þetta orðið aðeins of gróft,“ segir Dagrún Sunna á Facebook síðu sinni. Bendir hún á álagi fyrir slökkvilið, fjölmörg slys sem verða og gríðarlega loftmengun, einkum þegar veðrið er stillt eins og núna um áramótin.

„Það sem mér finnst þó alvarlegast í þessum málum eru áhrifin sem flugeldar hafa á dýr og ég held að fólk átti sig ekki alveg á því. Gæludýr, húsdýr og villidýr geta enga björg sér veitt í hræðilegum hvellum allt í kringum sig og fyrir þeim virðist aldrei ætla að enda. Ég þekki mörg dæmi af alls konar ofsahræddum dýrum en ég hef mesta reynslu sjálf af hestum,“ segir hún. Dæmi séu um að hestar hafi brotist út úr hesthúsum og stokkið á harðastökki í allar áttir vegna hræðslu.

„En ég spyr: er sanngjarnt að stutt skemmtun fáeinna bitni á öryggi, umhverfi, heilsu og líðan manna og dýra? Það eru mörg lönd og borgir sem hafa fundið aðrar leiðir, til dæmis með því að banna sölu flugelda til almennings og halda í staðinn skipulagðar og öruggar flugeldasýningar eða jafnvel ljósasýningar. Kannski er kominn tími til að við á Íslandi tökum upp á einhverjum svoleiðis lausnum,“ segir hún.

Hægt er að skrifa undir undirskriftalistann hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“