
Baba Vanga missti sjónina á barnsaldri en er sögð hafa farið að sjá skýrar sýnir sem hafa smátt og smátt vakið heimsathygli.
Meðal annars er hún sögð hafa séð fyrir sér Tsjernobyl-slysið, dauða Díönu prinsessu, hryðjuverkin 11. september, fall Sovétríkjanna og Brexit.
Baba Vanga lést árið 1996, áttatíu og fjögurra ára að aldri, en spádómar hennar halda áfram að vekja undrun fólks og hún sá ýmislegt fyrir sér varðandi næsta ár, 2024. Daily Mail tók saman nokkra spádóma Baba Vanga fyrir næsta ár.
Það sem vekur einna mesta athygli er að spákonan sá að mannkynið mun ná sambandi við nýja siðmenningu í nóvember næstkomandi.
Samkvæmt spánni mun „risavaxið geimfar“ koma til Jarðar og marka söguleg tímamót fyrir mannkynið. Það þarf kannski vart að taka fram að vísindamenn eru afar efins um að eitthvað slíkt sé yfirvofandi og bandarísk stjórnvöld hafa ekki fundið neinar sannanir fyrir tilvist slíkra vera.
Annar ógnvekjandi spádómur hennar snýst um möguleikann á þriðju heimsstyrjöldinni, þar sem hún varaði við vaxandi spennu milli stórvelda heimsins, þar á meðal Kína, Rússlands og Bandaríkjanna.
Einn umtalaðasti spádómur Baba Vanga fyrir árið 2026 fjallar um bylgju stórfelldra náttúruhamfara. Hún sá fyrir sér mikla jarðskjálfta, ofsafengnar eldgosahrinur og öfgaveður. Hún sá þó ekki bara neikvæða hluti fyrir því hún er einnig sögð hafa fengið sýnir af byltingarkenndum framförum, til dæmis blóðprufum til krabbameinsgreiningar og orkuvinnslu í geimnum.
Baba Vanga fæddist árið 1911 undir nafninu Vangelía Pandeva Dimitrova, en hún missti sjónina þegar hún var tólf ára gömul.
Hún setti fram marga spádóma – oft óljósa – um náttúruhamfarir, pólitískar breytingar og framtíðartækni. Stuðningsmenn hennar halda því fram að sumir þeirra hafi séð fyrir stóra atburði á borð við kafbátaslysið á Kursk, Brexit og uppgang ISIS.
Þrátt fyrir fjölda fylgjenda vara sérfræðingar við því að spádómar hennar séu getgátur og eigi sér enga stoð í staðreyndum. Engu að síður vekja spár hennar jafnan mikla athygli.