fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fréttir

„Ég reikna með að sumt komi fólki á óvart“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 9. desember 2025 14:42

Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjálfbær neysla, sorphirða og úrgangsstjórnun verða til umræðu í Fríbúðinni, Borgarbókasafninu Gerðubergi, miðvikudaginn 10. desember. Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg, mætir á svæðið og býst við að eiga fróðlegt samtal við gesti og gangandi.

„Ég reikna með að sumt muni koma fólki svolítið á óvart. Til dæmis að átta sig á hvaða umhverfisáhrif okkar eigin neysla hefur, því þau eru meiri en við höldum. Þess vegna er einmitt gott að vera meðvituð um þau og hvernig má draga úr þeim,“ segir Guðmundur.

Guðmundur hefur starfað að umhverfismálum hjá Reykjavíkurborg í rúm 20 ár og meðal annars leitt breytingar á flokkun og sorphirðu í borginni. Í Fríbúðinni ætlar hann að ræða um sjálfbæra neyslu, sorphirðu og úrgangsstjórnun.

„Enda eru þetta auðvitað allt mál sem eru fólki hugleikin. Mörg velta til dæmis sorphirðu fyrir sér og vilja vita af hverju við flokkum sumt og annað ekki,“ segir Guðmundur sem býst því við að áhugaverðar og fjörugar umræður eigi eftir að skapast í Fríbúðinni og vonast til að sjá sem flest.

Vinsælir viðburðir

Heimsókn Guðmundar er hluti af áhugaverðri viðburðaröð sem hefur staðið yfir Fríbúðinni í Gerðubergi í vetur undir yfirskriftinni Fríbúðakaffi, þar sem góðir gestir kíkja í kaffi og ræða eitt og annað sem viðkemur hringrásarhagkerfinu, tækifærum þess og áskorunum, endurnýtingu hráefna á heimilinu og fjölbreytt lífríki borgarinnar, svo fátt eitt sé nefnt. Fólk virðist greinilega áhugasamt að kynna sér þessi mál því viðburðirnir hafa notið vinsælda.

Spjallið í Fríbúðinni á miðvikudag hefst kl. 17:30 og fer fram á íslensku.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa