

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra tilkynnti í gær nýja samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar, en í henni er hætt við göng undir Fjarðarheiði. Hildur Þórisdóttir, bæjarfulltrúi í Múlaþingi segir ríkisstjórnina svíkja samgönguáætlun frá 2020, hún segir Fjarðarheiði stórhættulega og rök ráðherra ekki halda vatni.
Sama dag varð hörmulegt slys á Fjarðarheiði þar sem tveir bílar rákust saman, átta manns voru í bifreiðunum og lést einn þeirra.
Jóhann Hjalti Þorsteinsson sagnfræðingur og varabæjarfulltrúi í Múlaþingi tekur í sama streng og Hildur og segir ljóst að loforð stjórnmálamanna séu ekki pappírsins virði. Segir hann nýja áætlun innviðaráðherra lúta að hans eigin kjördæmi.
„Hvers virði er loforð stjórnmálamanna? Í dag er ljóst að þau eru ekki pappírsins virði. Ráðherra kynnti í dag það sem hann hefur unnið lengi að, áætlun sem skarar eld að hans eigin kjördæmi. Öll rök um öryggi sem hafa verið nýtt til réttlæta svikin í morgun eiga líka við um Fjarðarheiðargöng.Allt tal um hringtengingu á Austurlandi án gangna milli Héraðs og Fjarða er innantómt þvaður.“
Jóhann segir ástæðu vera fyrir því að margir veigra sér við því að fara um Fjarðarheiði og Fagradal um vetur.
„Slys eins og það sem varð í dag er það sem fólk óttast. Margir sleppa því að fara yfir ef það er ekki nauðsynlegt og ef færðin er minna en fullkomin.“
Jóhann segir í færslu sinni að Fjarðarheiði hafi ekki verið ófær í gær. Hann vilji að hætt sé að horfa eingöngu á lokunardaga því sú tölfræði segi ekki alla söguna.
„Lokanir eru slæmar en þæfingur og skafrenningur eða hálka eru líka tóm leiðindi og skapa hættu fyrir fólk með litla reynslu af vetrarfærð.
Það virðist vera þannig að margir sem hafa kallað veg yfir Öxi rugl vegna þess að hún sé svo há/snjóþung eru í dag að segja að Fjarðarheiði sé písofkeik. Öxi er 90 m lægri en heiðin okkar. Öxi er þannig staðsett að þar snjóar í raun bara brot af því sem snjóar á Fjarðarheiði.
Það er vissulega fallegt sumstaðar á Fjarðarheiði í fallegu veðri en það getur líka snjóað á henni þannig að vegur lokist í öllum mánuðum ársins. Þau sem hafa talað svona þurfa ekki að treysta á að heiðin sé fær.“

Segir Jóhann að þrjár ungar konur sem eru sveitarstjórnarfulltrúar og búsettar á Seyðisfirði hafi eignast börn á kjörtímabilinu. „Ein varð veðurteppt í heimabyggð þannig að ræsa þurfti út ljósmóður sem sest var í helgan stein og önnur var flutt með sjúkrabíl yfir heiðina en komst ekki lengra en inn í bílskýli HSA á Egilsstöðum þar sem barnið kom í heiminn.
Við getum ekki treyst á spítalann í Norðfirði þar sem of fáir vinna þar. Stundum er ekki svæfingarlæknir eða skurðlæknir á staðnum.“
Segir Jóhann Seyðfirðinga ekki sækja þjónustu í Fjarðabyggð. Þeir fari upp í Hérað eða út fyrir fjórðunginn. Sem íbúi á Héraði þá viti hann vel hvað Seyðisfjörður hefur upp á að bjóða en hafi oft þurft að sleppa því vegna færðar á heiðinni.
Segir Jóhann að lokum að Seyðfirðingar hafi mátt þola nóg.
„Hugur minn er með aðstandendum hins látna, þeim sem lentu í þessu slysi, komu að því og viðbragðsaðilum sem komu á staðinn. Hugur minn er með Seyðfirðingum öllum. Þeir hafa þurft að þola nóg.“