fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Maður sem stökk fram af svölum til að fremja sjálfsvíg – Lenti á eldri konu og er sakaður um manndráp

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 20. september 2025 18:00

Fjölbýlishúsið í Mílanó. Skjáskot/Google Maps

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ítalskur maður sem hugðist fremja sjálfsvíg hefur verið ákærður fyrir manndráp. Hann stökk af svölum byggingar en lenti á gamalli konu sem lést en dempaði fall hans í leiðinni svo hann lifði af.

Tímaritið People greinir frá þessu.

Atvikið átti sér stað í Mílanóborg í Ítalíu um klukkan 18:00 sunnudaginn 14. september síðastliðinn. Var lögregla og sjúkralið kallað til að háu fjölbýlishúsi þar sem maður og kona voru stórslösuð.

Engin tengsl

Sjúkraflutningafólk reyndi endurlífgun en konan reyndist vera látin. Hún hét Francesca Manno og var 83 ára gömul. En maðurinn, sem er 70 ára gamall lifði af.

Upphaflega var talið að fólkið hefði ætlað að fremja sjálfsvíg saman. Það er að þau hefðu bæði stokkið út um glugga byggingarinnar. En fljótlega kom í ljós að engin tengsl voru á milli fólksins.

Tilviljun

Maðurinn, sem ekki hefur verið nafngreindur í ítölskum miðlum, var með meðvitund þegar sjúkraflutningafólk kom að. Hann er nú á Niguarda sjúkrahúsinu í Mílanó, stórslasaður. Meðal annars er hann mölbrotinn á báðum fótleggjum eftir fallið. Læknar segja hins vegar að hann hafi aldrei verið í lífshættu vegna meiðsla sinna.

Hann hefur nú verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi þar sem talið er að hann hafi stokkið fram af svölum byggingarinnar og lent ofan á Francescu sem var fyrir tilviljun á gangi fyrir neðan gluggann. Talið er að maðurinn hafi ætlað að fremja sjálfsvíg.

Fór sjaldan út

Kona sem þekkir til Francescu Manno segir að hún hafi búið í húsinu sem maðurinn stökk frá. Hún hafi haldið sig mikið út af fyrir sig og sjaldan farið úr íbúðinni.

Krufning á líki hennar fer fram á komandi dögum en fram kemur í ítölskum miðlum að höggið hafi verið gríðarlegt og hún hafi látist samstundis. Talið er að hún hafi fengið alla þyngd mannsins á sig.

Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar