fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
433Sport

Elon Musk bálreiður vegna viðbragða við ummælum stjörnunnar um Charlie Kirk

433
Mánudaginn 15. september 2025 13:26

Elon Musk.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elon Musk virðist hneykslaður á þýska stórliðinu Borussia Dortmund í kjölfar viðbragða félagsins við færslu eins leikmanns þess um Charlie Kirk.

Felix Nmecha er leikmaðurinn sem um ræðir. Skrifaði hann eftirfarandi í kjölfar morðsins á Kirk: „Hvíldu í friði, þetta er svo sorglegur dagur. Megi guð vera með fjölskyldu Kirk á þessum erfiðu tímum. Jesús er leiðin að friði og ást.“

Nmecha hefur svo einnig sagt að Kirk hafi friðsamlega staðið á sínum skoðunum í gegnum tíðina. Hafa orð hans farið illa í marga, enn Kirk var mjög umdeildur. Nmecha er mjög trúaður og hefur áður verið sakaður um andúð gegn samkynhneigðum.

Der Spiegel segir að Dortmund ætli sér að ræða innbyrðis við Nmecha vegna ummæla hans. Margir hafa hneykslast á þessu í nafni málfrelsis.

Musk, sem er eigandi samfélagsmiðilsins X, hefur deilt nokkrum færslum er snúa að gagnrýni á Dortmund fyrir þessi viðbrögð. Deildi hann til að mynda færslu um að banna ætti fulltrúum Dortmund að mæta á HM vestan hafs næsta sumar.

Skrifaði hann þá einfaldlega „vá“ undir aðra færslu þar sem komið var inn á viðbrögð Dortmund.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Van Dijk með skilaboð til leikmanna Liverpool

Van Dijk með skilaboð til leikmanna Liverpool
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal heldur velli og United gæti náð í Meistaradeildina

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal heldur velli og United gæti náð í Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hjólar í Florian Wirtz – „Hann leit út eins og lítill strákur á vellinum“

Hjólar í Florian Wirtz – „Hann leit út eins og lítill strákur á vellinum“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Krísufundur hjá Napoli í dag eftir að Conte hjólaði í leikmennina í gær – Líkur á að hann segi upp

Krísufundur hjá Napoli í dag eftir að Conte hjólaði í leikmennina í gær – Líkur á að hann segi upp
433Sport
Í gær

„Manni dettur í hug að hann hafi sjálfur íhugað hver staðan sín væri“

„Manni dettur í hug að hann hafi sjálfur íhugað hver staðan sín væri“
433Sport
Í gær

Sárnar það að hafa verið kallaður sæðisgjafi og segist ekki fá að hitta son sinn

Sárnar það að hafa verið kallaður sæðisgjafi og segist ekki fá að hitta son sinn