Þrasið þingmanna um veiðigjöldin virðist engan endi ætla að taka en í dag tóku þingmenn sér góðan tíma undir dagskrárlið sem kallast fundarstjórn forseta til að kvarta undan öllu milli himins og jarðar. Stjórnarandstaðan var miður sín yfir ummælum ráðherra á opinberum vettvangi, yfir að fundur sem fram fór í morgun hafi ekki verið haldinn fyrr og svo undan veiðigjaldafrumvarpinu sjálfu. Stjórnarliðar börmuðu sér undan málþófi og undan því að hafa verið vændir um upplýsingaóreiðu þrátt fyrir að hafa byggt nefndarálit um frumvarpið á réttum tölum, eins og skattstjóri hafði staðfest í morgun.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mætti í Kastljósið á mánudaginn þar sem hún sagði stjórnarandstöðuna tala í falsfréttastíl um veiðigjaldamálið. Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra birti svo færslu á Facebook í gær þar sem hún spáði því að hærri veiðigjöld muni skila sveitarfélögum auknum útsvarsgreiðslum og kallaði málflutning stjórnarandstöðunnar „fals og hræðsluáróður hinnar grímulausu hagsmunagsælu“. Stjórnarandstaðan var í töluverðu uppnámi yfir þessum ummælum í dag. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, Hildur Sverrisdóttir, taldi ljóst að Inga hefði ekki hugmynd um hvað veiðigjaldafrumvarpið snýst og var enn móðguð yfir falsfrétta-ummælum Kristrúnar. Samflokksmanni Hildar, Jóni Pétri Zimsen, var líka nokkuð niðri fyrir og sagði óboðlegt að ráðherrar ríkisstjórnarinnar tali með þessum hætti. Miðflokksmaðurinn Bergþór Ólason gekk svo langt að kalla Ingu rangstæða hvað efnisatriði málsins varðar og bað forseta Alþingis að útskýra frumvarpið fyrir henni.
Þá fékk samflokksmaður Ingu, Sigurjón Þórðarson, nóg og gaf til kynna að það væri ósmekklegt að vega að Ingu þegar hún væri ekki í salnum til að verja sig. Þingflokksformaður Viðreisnar, Sigmar Guðmundsson, benti stjórnarandstöðunni á að orðum fylgi vissulega ábyrgð en þá þurfi stjórnarandstaðan líka að taka ábyrgð á eigin orðum enda hafi hún byggt málflutning sinn á stjarnfærðilega röngum tölum. Það væri svo stjórnarandstaðan sjálf sem væri rangstæð hvað varðaði mat á áhrifum frumvarpsins á landsbyggðina.
Viðreisnarmaðurinn Eiríkur Björn Björgvinsson vakti þá athygli á fundi atvinnuveganefndar í morgun, en þar hafi meðal annars skattstjóri staðfest að nefndin byggði meirihlutaálit sitt á réttum tölum. Fleiri stjórnarliðar stigu upp í pontu og bentu á að eftir fundinn í morgun sé ljóst að allt tal andstöðunnar um að tölur séu á reiki sé rangt og það hafi nú fengist staðfest. Nú sé því hægt að ræða raunverulega afstöðu stjórnarandstöðunnar til leiðréttingar veiðigjaldsins.
Áfram tókust stjórnarliðar og andstöðuliðar á um ummæli ráðherra, um talnareikning og um það hver sé í raun og veru rangstæður. Á sama tíma birtust niðurstöður könnunar Maskínu þar sem meirihluti svarenda sagðist vera mótfallinn málþófi og að það væri óeðlilegt að minnihluti Alþingis beiti því tóli til að stöðva mál sem hann er á móti. Eins sagðist meirihluti svarenda sammála því að Alþingi ætti að innleiða reglur til að koma í veg fyrir málþóf, enda væri það sóun á tíma alþingismanna og starfsmanna Alþingis.
Maskína birti aðra könnun í gær þar sem ljóst var að meirihluti þjóðarinnar er enn fylgjandi frumvarpinu þótt nokkuð hafi dregið úr stuðningi frá síðustu könnun.