fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Hjálmar ákærður í þriðja sinn fyrir skattsvik og krafist atvinnurekstrarbanns yfir honum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 25. júní 2025 14:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjálmar Árnason, eigandi og framkvæmdastjóri byggingafyrirtækisins Byggás, sem er gjaldþrota, hefur verið ákærður fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum, framin í rekstri einkahlutafélagsins Byggás ehf. Ákæran beinist einnig gegn félaginu.

Hjálmar og Byggás eru í fyrsta lagi sökuð um að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum félagsins innan lögboðins frests og fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var frá vorinu 2021 fram til vorsins 2022. Nemur upphæðin samtals tæplega 35 milljónum króna.

Ennfremur eru ákærðu sökuð um að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda fyrir tímabilið frá apríl 2021 og út ágúst 2022. Nemur upphæðin um 13,5 milljónum króna.

Í sömu ákæru er Hjálmar ákærður fyrir virðisaukaskattsvik í rekstri annars félags, sem einnig er gjaldþrota, H82 ehf. Var það stofnað í lok apríl árið 2021 en úrskurðað gjaldþrota einu og hálfu ári síðar. Starfsemin fólst í leigu á vélum og búnaði og leigu atvinnuhúsnæðis. Er Hjálmar sakaður um vanskil á virðisaukaskatti í rekstri fyrirtækisins upp á rúmlega 11 milljónir króna.

Tvisvar sakfelldur fyrir skattalagabrot

Byggás varð gjaldþrota og urðu skiptalok sumarið 2024. Engar eignir fundust í búinu og voru lýstar kröfur um 223 milljónir króna.

Hjálmar hefur tvisvar áður verið dæmdur fyrir skattalagabrot í rekstri Byggás en þá hét fyrirtækið H28.

Sjá einnig: Hjálmar verktaki sakfelldur fyrir skattsvik í annað sinn

Í frétt DV um skattsvikin frá því í febrúar árið 2023 segir:

„Hjálmar Árnason, fyrrverandi framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins H28, hefur verið sakfelldur fyrir stórfelld skattsvik. Dómur yfir honum var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness þann 6. febrúar síðastliðinn.

Er þetta í annað sinn á stuttum tíma sem Hjálmar er dæmdur fyrir skattsvik vegna athafna í rekstri sama fyrirtækisins. Hann hlaut í apríl í fyrra 15 mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir brot í rekstri sama fyrirtækis auk 127 milljóna króna sektar. En að þessu sinni var Hjálmar dæmdur fyrir önnur skattsvik í rekstri H28.

Var hann ákærður fyrir að hafa vanrækt að greiða virðisaukaskatt og staðgreiðslu skatta frá því í desember árið 2019 og fram til fyrstu mánaða ársins 2021. Samtals nema þessi skattsvik rétt rúmlega 100 milljónum króna.“

Krafist atvinnurekstrarbanns

Auk þess að krefjast þess að Hjálmar verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar þá krefst héraðssaksóknari þess að hann verði dæmdur í atvinnurekstrarbann. Í ákærunni segir orðrétt:

„Að auki er þess krafist að ákærða [afmáð] verði, með vísan til 4. mgr. 262. gr. almennrahegningarlaga nr. 19/1940, bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna, sitja í stjórn, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun eða fara með meiri hluta atkvæðisréttar í slíku félagi í allt að þrjú ár.“

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness föstudaginn 27. júní næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill varar valkyrjurnar við – „Held að ríkisstjórnin megi vara sig“

Egill varar valkyrjurnar við – „Held að ríkisstjórnin megi vara sig“