fbpx
Mánudagur 16.júní 2025
Fréttir

Fullnægingarfrömuður dæmdur fyrir vinnumansal – Fyrirtækið sagt líkjast sértrúarsöfnuði

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 15. júní 2025 20:30

Nicole græddi á tá og fingri. Mynd/Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nicole Daedone og Rachel Cherwitz, stofnandi og sölustjóri hins umdeilda fyrirtækis OneTaste, hafa verið fundnar sekar um vinnumansal af dómstól í New York fylki. Gætu þær átt yfir höfði sér þunga dóma.

Fullnægingar hugleiðsla

Daedone stofnaði OneTaste árið 2004. Fyrirtækið, sem er með starfsstöðvar í New York, Los Angeles, London og víðar selur kennslu í svokallaðri „fullnægingar hugleiðslu“ (Orgasmic meditation).

Samkvæmt fyrirtækinu á þessi meðferð að stuðla að vellíðan og bata konunnar, oft eftir áföll, til að mynda kynferðisleg áföll. En meðferðin felst að miklu leyti í að framkvæmd sé fróun með fingrum á konunni, oftast af karlmanni, í 15 mínútur í senn.

Seldi en slapp ekki

Fyrirtækið var lengi undir smásjá yfirvalda enda þótti það bera merki þess að vera eins konar sértrúarsöfnuður. Árið 2017 seldi Daedone sinn hlut í fyrirtækinu á 12 milljónir Bandaríkjadollara, það er um 1,5 milljarð íslenskra króna. En það þýddi ekki að hún væri sloppin.

Ári seinna birti fréttastofan Bloomberg afhjúpun um starfsemina, þar sem sagt var að innan fyrirtækisins færi meðal annars fram vændi, kynlífsþrælkun og vinnumansal.

Árið 2018 var öll starfsemi OneTaste í Bandaríkjunum stöðvuð og fimm árum seinna, það er árið 2023 voru Daedone og Cherwitz ákærðar eftir rannsókn alríkislögreglunnar, FBI.

Stunda kynferðislegar athafnir með ríkum mönnum

„Undir yfirskini valdeflingar og vellíðunar er sakborningunum gefið að sök að hafa viljað hafa fullkomna stjórn á lífi starfsfólks síns. Þær komu þeim út í skuldir, héldu eftir launum og skipuðu þeim að framkvæma kynferðislegar athafnir,“ sagði saksóknarinn Breon Peace eins og segir í frétt tímaritsins People um málið.

Fyrrverandi starfsmenn vitnuðu um að hafa verið látnir þræla við að selja námskeið í fullnægingarhugleiðslu fyrir lítið sem ekkert kaup. En námskeiðið gat kostað allt að 60 þúsund dollara, eða 7,5 milljón króna.

Sögðu starfsmennirnir einnig að ætlast hafi verið til þess að þeir myndu stunda fullnægingar hugleiðslu á hverjum degi. Einnig að starfsmennirnir hafi verið þvingaðir til þess að stunda þessa iðju með auðugum mönnum í þeirri von um að þeir myndu fjárfesta í fyrirtækinu eða kaupa dýr námskeið.

Enginn þvingaður til neins

Daedone hefur þegar tilkynnt að hún hyggist áfrýja dóminum. „Þetta mál hefði aldrei átt að verða til. OneTaste hefur alltaf snúist um valdeflingu, samþykki og lækningu,“ sagði talsmaður hennar. Sagði talsmaðurinn að málatilbúnaður ákæruvaldsins væri keyrður áfram af æsifréttamennsku og eftiráskýringum á ákvörðunum fullorðins fólks. Enginn hefði verið þvingaður til neins.

Daedone og Cherwitz lýstu báðar yfir sakleysi sínu og var búist við að þær myndu bera vitni í málinu. Það raungerðist hins vegar ekki og kallaði lögmaður þeirra aðeins til eitt vitni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt