En nú eru nýjar vendingar í málinu að sögn The Sun. Miðillinn segir að frændi Banaz, Ari Mahmod, hafi höfðað mál á hendur sjónvarpsstöðinni ITV fyrir að hafa haldið því fram í sjónvarpsmynd og heimildaþætti að hann hafi leyft þremur frændum hennar að nauðga henni áður en hún var myrt af honum, föður sínum og þremur öðrum ættingjum.
Morð af þessu tagi eru yfirleitt skipulögð og framin af einum eða fleiri ættingjum í sameiningu. Er þetta gert til að endurreisa heiður fjölskyldunnar sem fórnarlambið hefur að mati viðkomandi skaðað með hegðun sinni.
Ari Mahmod segir að nauðgunarásakanirnar geri að verkum að orðspor hans sé nú ónýtt og að fjölskylda hans beiti hann þvingunum.
„Í landinu mínu er morð eðlilegt og að maður fái nýtt tækifæri eftir afplánun dóms. Í mínu menningarsamfélagi, voru það aðallega nauðgunarásakanirnar sem fólk brást við,“ sagði hann þegar hann kom fyrir rétt í Englandi í gegnum fjarfundabúnað.
Hann sagði að nauðgun sé mjög tabúlagt efni í íslömsku samfélagi og sé meðal verstu glæpanna.
Banaz var kyrkt á heimili foreldra sinna og lík hennar var síðan sett í tösku.
Faðir hennar, föðurbróðir og þrír aðrir karlkyns ættingjar hennar voru dæmdir í ævilangt fangelsi fyrir morðið.