
Inter Miami, hvar Lionel Messi spilar, er sagt hafa áhuga á að fá Casemiro til liðs við sig þegar hann yfirgefur Manchester United í lok tímabilsins.
Brasilíumaðurinn hefur staðfest að hann muni far þegar samningur hans á Old Trafford rennur út í júní. Samkvæmt fréttum vilja forráðamenn Miami fá hann á frjálsri sölu sem mögulegan arftaka Sergio Busquets, sem lagði skóna á hilluna í fyrra.
Casemiro er einnig sagður vekja áhuga í heimalandinu, þar sem uppeldisfélag hans Sao Paulo er tilbúið að bjóða honum tveggja ára samning. Hefur hann einnig verið orðaður við Sádi-Arabíu, til að mynda Cristiano Ronaldo og félaga í Al-Nassr.
Casemiro þénar um 375 þúsund pund á viku í Manchester og ekki hver sem er til í að taka slíkan launapakka á sig.