Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, ætlar að snúa aftur til Þýskalands eftir fjögur ár.
Klopp hefur undanfarin fimm ár stýrt Liverpool og hefur unnið bæði Meistaradeildina og ensku úrvalsdeildina.
Klopp ætlar að yfirgefa Anfield eftir fjögur ár og ætlar að njóta lífsins í heimalandinu.
,,Auðvitað ætla ég að snúa aftur og lifa lífinu. Það verður líklegast hjá Mainz,“ sagði Klopp sem var leikmaður liðsins.
Klopp var svo spurður út í hvenær hann myndi yfirgefa Liverpool og svaraði: ,,Fjögur ár í viðbót.“