
Tíu leikmenn frá jamaíska félaginu Mount Pleasant FA hafa fengið synjun á vegabréfsáritun til Bandaríkjanna og geta því ekki tekið þátt í leik liðsins gegn LA Galaxy í CONCACAF Meistaradeildinni á morgun.
Leikurinn fer fram á Dignity Health Sports Park í Kaliforníu og er fyrsti leikur Mount Pleasant í keppninni. Vegna vandans hefur félagið þurft að kalla upp nokkra leikmenn úr unglingaliðinu.
Samkvæmt íþróttastjóranum Paul Christie eru sjö leikmenn hópsins frá Haítí. Árið 2025 tilkynnti forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, um ferðatakmarkanir á ríkisborgara Haítí, sem virðast hafa haft áhrif á vegabréfsáritanir leikmannanna.
Undanþágur eru þó fyrir leikmenn á stórmótum eins og á HM í sumar, sem verður haldið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Málið vekur þó áhyggjur um hvort svipuð vandamál gætu komið upp á heimsmeistaramótinu, þar sem landslið Haítí hefur tryggt sér sæti og mætir Marokkó, Skotlandi og Brasilíu í riðlakeppninni.