
Framtíð sóknarmannsins Darwin Nunez er óljós eftir að hann var tekinn úr leikmannahópi Al-Hilal í sádiarabísku deildinni eftir áramót.
Nunez er til að mynda orðaður við Atletico Madrid og Newcastle og talið er að þau gætu bæði freistað þess að fá kappann aftur til Evrópu, en hann var seldur til Sádí frá Liverpool í fyrra.
Atletico er sagt leiða kapphlaupið um Nunez sem stendur, en það sem gæti verulega flækt málin fyrir hvaða félag sem ætlar að fá Nunez er launapakkinn sem honum fylgir.
Nunez fór til Al-Hilal fyrir mun hærri laun og ljós er að hann þarf að taka á sig hressilega launalækkun ef hann ætlar aftur í Evrópuboltann.