
Galatasaray vann Liverpool á heimavelli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Mario Lemina gerði eina markið snemma leiks og lokatölur því 1-0. Það er þó allt opið fyrir seinni leikinn á Anfield eftir rúma viku.
Þess má geta að þetta var annar sigur Galatasaray á Liverpool á leiktíðinni, en liðið vann einnig einvígi liðanna í deildarkeppninni fyrir áramót.