
Liverpool er sagt ætla að blanda sér í baráttuna um sóknarmanninn Eli Junior Kroupi hjá Bournemouth.
Þessi 19 ára gamli Frakki hefur vakið mikla athygli á tímabilinu og Chelsea hefur einnig fylgst með gangi mála hjá honum.
Talið er að Bournemouth gæti krafist allt að 80 milljóna punda greiðslu fyrir leikmanninn ef hann verður seldur í sumar.
Hjá Liverpool vinna menn að því að yngja upp hópinn og vilja fá inn leikmenn sem henta vel til lengri tíma. Fellur Kroupi þar vel undir.
Kroupi hefur skorað átta mörk í 24 leikjum í ensku úrvaldseildinni í vetur.