fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

433
Þriðjudaginn 10. mars 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jökull Þorkelsson blaðamaður á Morgunblaðinu kallar eftir breytingum þegar kemur að Lengjudeild karla og úrslitaleik þar um laust sæti í efstu deild.

Deildin er á leið inn í sitt fjórða tímabil þar sem farið er í umspil og svo úrslitaleik um laust sæti í Bestu deild karla.

„Vestri var fyrsta liðið til að komast upp í gegnum umspilið, með sigri á Aftureldingu haustið 2023. Afturelding komst síðan upp ári seinna með sigri á Keflavík og Keflavík komst svo upp í fyrra með sigri á HK. Það virðist góð reynsla að tapa í úrslitunum. Vestri og Afturelding höfnuðu í fjórða sæti deildarinnar og Keflavík í fimmta sæti. Því á enn lið úr öðru eða þriðja sæti deildarinnar eftir að komast upp í gegnum umspilið,“ skrifar Jökull í Morgunblað dagsins.

Hann segir breytinguna hafa heppnast vel en kallar þó eftir einni breytingu.

„Þó mætti breyta einu, en það er hvar úrslitaleikurinn fer fram. Ofanrituðum hefur fundist úrslitaleikurinn ekki enn standa undir væntingum þó að pælingin sé frábær. Laugardalsvöllurinn er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar.“

Hann segir lausnina vera einfalda. „Betra væri að hafa úrslitaleikinn á heimavelli þess liðs sem endar ofar í töflunni. Þá yrði það lið verðlaunað fyrir að standa sig betur í deildinni, full stúka á vellinum og gífurleg stemning á þessari skemmtilegu stundu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sorglegt andlát hjá 15 ára stúlku um helgina – Hneig niður í miðjum leik

Sorglegt andlát hjá 15 ára stúlku um helgina – Hneig niður í miðjum leik
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Flækist inn í stórt lögfræðimál – Krefjast þess að fá bætur eftir svikin loforð

Flækist inn í stórt lögfræðimál – Krefjast þess að fá bætur eftir svikin loforð
433Sport
Í gær

Xavi vildi leikmanninn sem hefur slegið í gegn með Arsenal – Yfirmennirnir sögðu hann of dýran

Xavi vildi leikmanninn sem hefur slegið í gegn með Arsenal – Yfirmennirnir sögðu hann of dýran
433Sport
Í gær

Svona er staða Íslands eftir fyrstu tvo leikina – Mikið undir á Laugardalsvelli í apríl

Svona er staða Íslands eftir fyrstu tvo leikina – Mikið undir á Laugardalsvelli í apríl