fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Gary Neville með kenningu um það sem gerðist á Anfield í gær

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. febrúar 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gary Neville gagnrýndi harðlega ákvörðun dómarateymisins að dæma þriðja mark Manchester City ógilt í dramatískum 2-1 sigri liðsins á Liverpool á Anfield og lét skoðun sína skýrt í ljós í beinni útsendingu.

Leikurinn var æsispennandi undir lokin. Liverpool hafði komist yfir með aukaspyrnu frá Dominik Szoboszlai en City sneri leiknum við með marki frá Bernardo Silva og vítaspyrnumarki Erling Haaland í uppbótartíma. Í blálokin virtist City svo bæta við þriðja markinu þegar Rayan Cherki skaut að auðu marki langt utan af velli.

Í aðdragandanum togaði Szoboszlai í treyju Haaland og dómarinn gaf merki um hagnað. Haaland togaði þá á móti í Szoboszlai og boltinn endaði í netinu. VAR greip hins vegar inn í og markið var dæmt af.

Neville var ósáttur og sagði í lýsingu. „VAR er að segja að þú getir ekki leyft hagnað en síðan hunsað það.“ Hann bætti við.

„Þetta finnst manni svo ósanngjarnt, ég veit að reglurnar eru til staðar en tilfinningin fyrir leiknum er horfin.“

Þá sagði hann einnig. „Það er enginn fótboltamaður sem myndi dæma þetta mark af, en það verður gert.“ Ummælin hafa vakið miklar umræður meðal stuðningsmanna eftir leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn