fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Vonast til að halda góðu gengi áfram svo Frank komist loksins í klippingu

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. febrúar 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikmenn Manchester United eru staðráðnir í að halda sigurgöngu sinni áfram – svo dyggur stuðningsmaður geti loksins farið í klippingu.

Stuðningsmaðurinn Frank Ilett hefur nú verið tæplega 500 daga án þess að láta klippa hárið eftir að hafa heitið því að snerta ekki hárið fyrr en United ynni fimm leiki í röð.

Óstöðugt gengi liðsins hefur hins vegar þýtt að biðin hefur dregist á langinn og Frank safnað myndarlegu krullaðri hárprýði.

Nú hefur liðinu gengið betur og leikmenn vilja halda því áfram. United hefur unnið þrjá sterka sigra í röð, gegn erkifjendunum í Manchester City, toppliði Arsenal og Fulham, undir stjórn Michael Carrick.

Samkvæmt enskum blöðum eru leikmennirnir ánægðir með viðsnúninginn og stemningin á æfingasvæðinu mjög góð. Þeir þekkja einnig til Franks, sem lætur reglulega sjá sig á samfélagsmiðlum og minnir á heit sitt.

Takist United að ná fimm sigrum í röð gæti Frank loksins sest í stólinn hjá hárgreiðslumanni, til mikillar gleði fyrir bæði hann og aðra stuðningsmenn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn