fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Telur leikmenn Arsenal ekki treysta Gyokeres

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. febrúar 2026 14:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Paul Merson, fyrrverandi leikmaður Arsenal og sparkspekingur hjá Sky Sports, ræddi stöðu Viktors Gyökeres hjá Arsenal í þættinum Premier League Friday og telur að sjálfstraust sænska framherjans sé ekki upp á sitt besta.

Merson segir að liðsfélagar Gyökeres treysti honum ekki nægilega mikið með boltann. Hann fylgist vel með Arsenal og telur að Gyökeres bjóði sig oft fram, en fái boltann sjaldan.

Að hans mati hafi besti leikur hans verið gegn Leeds nýlega, þar sem hann hélt boltanum vel og komst í færi, þó hann hafi dregið of lengi að skjóta. Annars nefnir hann útileik gegn Burnley sem jákvætt dæmi, en bendir á að þau lið séu neðarlega í deildinni.

Merson hrósaði hlaupum Gyökeres inn í svæði og sagði stundum einfaldlega þurfa að senda boltann fram, þar sem hann gæti unnið innkast og byggt upp sjálfstraust.

Hann nefndi jafnframt að framherjinn hafi aðeins snert boltann einu sinni á fyrstu 25 mínútunum gegn Chelsea, sem sýni að hann sé of lítið inni í spilinu. Þá líkti hann stöðunni að hluta við tíma Romelu Lukaku hjá Chelsea.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn