fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hrósar foreldrum Greenwood – Segist hafa heimsklassa leikmann í dag

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. febrúar 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Roberto De Zerbi, þjálfari Marseille, hrósaði Mason Greenwood í hástert á blaðamannafundi og sagði sóknarmanninn hafa náð heimsklassaformi eftir að hafa farið í gegnum erfiða tíma á ferlinum.

Greenwood, sem er 24 ára, yfirgaf Manchester United umdeildur sumarið 2024 en hefur síðan endurvakið feril sinn í Frakklandi undir stjórn De Zerbi og orðið mikilvægur hluti af liðinu.

Hann var handtekinn í janúar 2022 og ákærður fyrir tilraun til nauðgunar, þvingandi hegðun og líkamsárás. Ákærurnar voru felldar niður í febrúar 2023 eftir að lykilvitni drógu sig til baka, en hann spilaði ekki aftur fyrir United og var að lokum seldur til Marseille.

De Zerbi lét vel af leikmanninum á föstudag. „Við þurfum alltaf á Greenwood að halda eins og þeim sem við sáum í síðustu tveimur leikjum,“ sagði Ítalinn.

Hann bætti við. „Hann er heimsklassa Greenwood því, til viðbótar við það sem móðir hans og faðir kenndu honum, er hann að verða heilsteyptur leikmaður.“

Þá vísaði hann til mótlætis leikmannsins. „Hann hefur líka gengið í gegnum erfiða tíma, en hann fór ekki. Hann var hér áfram. Hann skildi að við vorum að segja honum hluti honum sjálfum til góðs og fyrir hag Marseille.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn