fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 28. febrúar 2026 08:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Opta-ofurtölvan hefur staðfest að Arsenal sé enn líklegast til að vinna Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í sögu félagsins, eftir að dregið var í útsláttarkeppninni á föstudagsmorgun.

Lið Mikel Arteta er áfram í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar eftir erfiðan vetrarkafla og er jafnframt í baráttu um fjóra titla á þessu tímabili. Eftir að hafa endað í öðru sæti tvö ár í röð er deildartitillinn í forgangi hjá stuðningsmönnum, en möguleikinn á evrópskum stórtitli er afar freistandi.

Dregið var þannig að Arsenal mætir Bayer Leverkusen í 16-liða úrslitum. Takist liðinu að komast áfram bíður þess annað hvort Bodo/Glimt eða Sporting Lissabon í átta liða úrslitum.

Í undanúrslitum gæti Arsenal síðan mætt sigurvegara úr viðureign Newcastle og Barcelona, eða Atletico Madrid gegn Tottenham.

Leið Arsenal í átt að úrslitaleiknum í Búdapest virðist því greið eftir dráttinn.

Líkurnar:
Arsenal – 27.40 prósent
Bayern Munich – 14.28 prósent
Liverpool – 12.83 prósent
Man City – 10.79 prósent
Barcelona – 7.72 prósent
Chelsea – 6.86 prósent
Newcastle – 4.66 prósent
Paris Saint-Germain – prósent
Real Madrid – 2.78 per prósent
Sporting Lisbon – 2.73 prósent
Atletico Madrid – 2.00 prósent
Tottenham – 1.22 prósent

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð