fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 27. febrúar 2026 14:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barcelona hefur hafið viðræður um að reyna að semja um varanleg kaup á Marcus Rashford frá Manchester United, samkvæmt spænskum miðlum.

Íþróttastjórinn Deco átti fund með umboðsmönnum enska landsliðsmannsins á mánudag þar sem fyrstu skref voru tekin í samningaviðræðum fyrir sumarið. Rashford er nú á láni hjá Barcelona og hefur staðið sig vel á tímabilinu.

Samkvæmt fréttum vill katalónska félagið lækka kaupákvæði sem sett var inn í lánssamninginn, en það hljóðar upp á 30 milljónir evra, eða um 26 milljónir punda. Manchester United hefur hins vegar ekki áhuga á að endursemja um þá upphæð.

Rashford sjálfur er sagður vilja vera áfram hjá Barcelona til frambúðar eftir að hafa fundið sig vel í liðinu.

Sóknarmaðurinn hefur skorað 10 mörk og lagt upp önnur 10 í 34 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu og hefur verið lykilmaður í sóknarleik liðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sturlaður kostnaður United við Ruben Amorim kemur í ljós eftir uppgjör

Sturlaður kostnaður United við Ruben Amorim kemur í ljós eftir uppgjör