fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Víkingur að kaupa Jóa Bjarna frá Danmörku

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 12:42

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víkingur Reykjavík er á leiðinni að styrkja sig fyrir komandi verkefni en félagið hefur fengið samþykkt tilboð í Jóhannes Kristinn Bjarnason, leikmann danska félagsins Kolding. Greint var frá þessu í Dr. Football, þar sem Hjörvar Hafliðason sagði að samningurinn væri á lokastigi og að leikmaðurinn yrði kynntur á næstu dögum.

Jóhannes hefur verið orðaður við Víking að undanförnu og tengdust þær sögur meðal annars mögulegri sölu á Valdimar Þór Ingimundarsyni. Sá verður þó áfram verið hjá félaginu eftir að hafa hafnað tilboði frá sænska liðinu Kalmar fyrr í mánuðinum.

Hinn 21 árs gamli Jóhannes er uppalinn hjá KR en fór ungur til Norrköping í Svíþjóð áður en hann sneri aftur í Vesturbæinn. Hann átti gott tímabil með KR áður en hann var seldur til Kolding síðasta sumar.

Hjá danska liðinu fékk hann takmarkað tækifæri og virðist því nú á leið heim í íslenska boltann. Jóhannes er leikmaður U21 landsliðsins og getur leyst bæði bakvarðar- og miðjumannsstöður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn