fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Stjórnarmaður Barcelona með áhugaverð ummæli um Erling Haaland

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barcelona virðist ætla að láta til sín taka á félagaskiptamarkaðnum í sumar þrátt fyrir vel þekkt fjárhagsvandamál félagsins.

Sóknarlínan er sögð vera í forgangi hjá þjálfaranum Hansi Flick, sérstaklega þar sem Robert Lewandowski er á síðustu mánuðum samnings síns.

Félagið hefur verið orðað við Atlético Madrid framherjann Julián Álvarez, en einnig hefur nafn Erling Haaland hjá Manchester City komið upp í umræðunni.

Joan Soler, stjórnarmaður hjá Barcelona og náinn samstarfsmaður forsetans Joan Laporta, telur félagið hafa bolmagn til að landa stórum nöfnum. „Já, við gætum keypt leikmenn eins og Julián Álvarez eða Erling Haaland,“ sagði Soler í samtali við Cadena Ser.

Hann telur að slík kaup myndu borga sig til lengri tíma. „Slík félagaskipti myndu borga sig upp innan fimm ára og fjárhagsstaða Barcelona er tilbúin fyrir það,“ bætti hann við.

Barcelona virðist því stefna á að styrkja sig verulega í sókninni fyrir næsta tímabil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn