fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Forseti FIFA tjáir sig um ástandið í Mexíkó – Ísland á leik þar í nótt

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 11:00

Gianni Infantino, forseti FIFA / Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti FIFA, Gianni Infantino, segist ekki hafa áhyggjur af því að færa þurfi leiki á HM 2026 frá Mexíkó þrátt fyrir öldu ofbeldis í landinu.

Mexíkó er einn þriggja gestgjafa mótsins, ásamt Bandaríkjunum og Kanada. Opnunarleikurinn fer fram í Mexíkóborg 11. júní þar sem heimamenn mæta Suður-Afríku. Þá eru leikir einnig á dagskrá í Guadalajara.

Óeirðir brutust út eftir að glæpaforinginn Nemesio Oseguera-Cervantes, betur þekktur sem El Mencho, var drepinn af hernum. Í kjölfarið hafa verið gerðar árásir víða um land, sem hefur vakið spurningar um öryggi á HM.

„Nei, ég hef ekki áhyggjur. Við fylgjumst mjög vel með því sem er að gerast í Mexíkó. Við erum í sambandi við yfirvöld og höfum fulla trú á að allt fari vel. Þetta verður hátíð,“ segir Infantino hins vegar.

Hann bætti við að öryggi væri í forgangi og að FIFA treysti gestgjöfunum þremur til að halda mótið án vandræða.

Þess má geta að Ísland mætir Mexíkó í vináttulandsleik þar ytra í nótt og sem stendur verður sá leikur ekki blásinn af þrátt fyrir ástandið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn