fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Var í tvígang í viðræðum við United um að taka að sér starf

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 23. febrúar 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Edwin van der Sar, fyrrum markvörður Manchester United, hefur greint frá því að hann hafi átt í viðræðum við Ed Woodward um mögulegt starf hjá félaginu.

Hinn 55 ára Hollendingur, sem síðast starfaði sem framkvæmdastjóri Ajax, segir að samtölin hafi átt sér stað á tveimur mismunandi tímabilum. „Já, ég ræddi tvisvar við Ed Woodward um að taka að mér hlutverk hjá Manchester United,“ sagði Van der Sar.

Hann útskýrði þó að á þeim tíma hafi hann ekki talið sig tilbúinn til að yfirgefa Ajax.

„Á þeim tímapunkti fannst mér starfi mínu hjá Ajax ekki lokið. Við vorum á ákveðinni vegferð og ekki komnir á endastöð,“ bætti hann við.

Van der Sar sagði að um jákvæðar viðræður hefði verið að ræða og að hlutverkið hefði líklega verið við hlið Woodward innan stjórnar félagsins.

Hollendingurinn hætti hjá Ajax árið 2023 eftir að liðið endaði í þriðja sæti hollensku úrvalsdeildarinnar og missti af sæti í Meistaradeild Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn