
Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, mun ekki spila gegn Real Madrid í seinni leik liðanna. Hann hefur verið settur í bann af UEFA.
Prestianni er gefið að sök að hafa verið með kynþáttaníð í garð Vinicius Junior í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni í síðustu viku, eins og mikið hefur verið fjallað um.
Rannsókn stendur yfir, en á meðan hefur UEFA sett hann í eins leiks bann, sem byggir á hluta þeirra gagna sem eru til rannsóknar. Þetta bann er því óhað hugsanlegu banni síðar meir.
Hann mætir því ekki Real Madrid í seinni leik liðanna á miðvikudag.