fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Uppljóstrar því að leikmenn Arsenal hafi haldið fund í vikunni

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 21. febrúar 2026 08:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Declan Rice segir að leikmenn Arsenal hafi átt „hreinskilið og ákveðið“ samtal sín á milli eftir vonbrigðin gegn Wolves, þar sem liðið missti niður 2-0 forystu og gerði 2-2 jafntefli.

Arsenal var með tögl og hagldir á leiknum á Molineux en fékk á sig jöfnunarmark í uppbótartíma, sem gæti reynst dýrkeypt í titilbaráttunni. Úrslitin hafa aukið umræðu um hugarfar liðsins, sem hefur endað í öðru sæti undanfarin ár.

Rice segir leikmenn hafa tekið ábyrgð eftir leikinn. „Titillinn verður ekki afhentur okkur, við þurfum að vinna hann og eiga hann skilið. Við þurfum að vera tilbúnir fyrir allt,“ sagði hann.

„Við ræddum málin á ákveðinn hátt eftir Wolves. Við vissum að við höfðum brugðist sjálfum okkur og stuðningsmönnum. Þetta er ekki sá standard sem við höfum sett okkur.“

Hann bætti við að liðið hefði haldið liðsfund og væri nú tilbúið að halda áfram baráttunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn